Alzheimerkaffi í Hæð...

Alzheimerkaffi í Hæðargarði 31

Alzheimerkaffi er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra. Tilgangurinn er að gefa fólki tækifæri til að koma saman, þar sem þeirra þörfum er mætt og opna umræðu um áskoranir fólks með heilabilun.

Alzheimerkaffi í Hæðargarði 31

Hæðargarður 31

108 Reykjavík

kl 17:00 - 18:30

Dagskrá:

Valný Óttarsdóttir verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg verður með stutta kynningu á þróunarverkefninu Sigurvin sem er á vegum Velferðasviðs Reykjavíkurborgar og felur í sér félagslegan stuðning fyrir einstaklinga með heilabilun til að létta álagi á aðstandendur.

Njótum þess að hittast og vera saman. Hlusta á kynningu á Sigurvin þróunarverkefninu, spjalla og gæða okkur á góðum veitingum sem Soroptimistar annast. Og síðast en ekki síst skulum við njóta þess að syngja saman við stjórn og undirleik Sveins Arnars Sæmundssonar.

Ekki þarf að skrá sig, bara mæta á staðinn. Kaffigjald er 500,- kr.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?