Drafnarhús
Í byrjun janúar 2006 tók til starfa dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun að Strandgötu 75 í Hafnarfirði. Hlaut hún nafnið Drafnarhús. Hafnarfjarðarbær lagði til húsnæði fyrir starfsemina. Drafnarhús er dagþjálfun rekin af Alzheimersamtökunum.
Strandgötu 75
220 Hafnarfirði
Opið alla virka daga
08:00 - 16:30
Markmið dagþjálfana í rekstri Alzheimersamtakanna er að:
- viðhalda sjálfstæði einstaklingsins eins lengi og kostur er með því að styrkja líkamlega og vistmunalega hæfni hans og stuðla þannig að því að hann geti búið sem lengst heima.
- rjúfa félagslega einangrun og efla þátttöku í daglegum athöfnum.
- létta undir með aðstandendum.
- fylgjast með daglegu heilsufari.
- efla sjálfstraust, draga úr vanlíðan og vanmáttakennd.
Tekið er mið af getu hvers og eins þannig að einstaklingurinn fái að njóta sín og finni fyrir öryggi og vellíðan.
Alls dvelja í húsinu dag hvern 22 einstaklingar með heilabilun.
Strandgötu 75, 220 Hafnarfirði
Opið alla virka daga frá 08:00 - 16:30
Sími: 534 1080 / 534 1081
drafnarhus@alzheimer.isStjórn