Þekktu einkennin

Það er mikilvægt að þekkja einkenni heilabilunar svo hægt sé að bregðast hratt og rétt við.

Heilabilun er regnhlífarhugtak yfir um 200 sjúkdóma sem hafa áhrif á minni og aðra vitsmunalega getu sem veldur skerðingu á getu einstaklinga til að sinna athöfnum daglegs lífs.

Heilabilun er ekki eðlileg öldrun og er ekki öldrunarsjúkdómur. Í heilanum verða líffræðilegar breytingar og er Alzheimer algengasta orsökin. Á hverju ári greinast yfir 20 einstaklingar yngri en 65 ára með heilabilun.

Talið er að á Íslandi séu um 6.000 einstaklingar með heilabilun. Í kringum þessa einstaklinga er mikill fjöldi aðstandenda sem sjúkdómurinn hefur einnig áhrif á.

Hver eru helstu einkenni heilabilunar?

Einkenni geta verið misjöfn eftir einstaklingum en hér eru nokkur algeng einkenni:

  • Gleymni sem nýlega hefur orðið vart við.
  • Hlutirnir eru ekki settir á sinn stað.
  • Erfiðleikar við skipulag og flóknari athafnir daglegs lífs.
  • Erfiðleikar við að glöggva sig á tíma og rúmi, rata jafnvel ekki í áður velþekktu umhverfi.
  • Óvenju líflegir draumar og sjónrænar ofskynjanir.
  • Versnandi samhæfing og jafnvægistruflanir.
  • Erfiðleikar við tjáningu og málskilning.
  • Minnkandi félagsfærni.
  • Erfiðleikar við venjubundnar athafnir s.s. innkaup, matargerð o.þ.h.
  • Persónuleikabreytingar.
  • Minnkandi frumkvæði.

Hvert á ég að leita?

Ef grunur er um að einstaklingur sé með heilabilun er fyrsta skrefið að leita til heimilislæknis. Heimilislæknir getur framkvæmt fyrstu greiningu og sé frekari rannsókna þörf vísar heimilislæknirinn á viðeigandi sérfræðing.

Einnig er hægt að leita til ráðgjafa hjá Alzheimersamtökunum. Boðið er upp á ráðgjöf á staðnum, í fjarviðtali eða í síma. Hægt er að panta tíma í ráðgjöf í síma 520-1082 eða senda tölvupóst á radgjafi@alzheimer.is. Ráðgjöfin er öllum að kostnaðarlausu.

Hvers vegna er mikilvægt að fá formlega greiningu?

Formleg greining veitir aðgang að viðeigandi þjónustuúrræðum fyrir einstaklinga með heilabilun. Einnig eru lyf sem henta í sumum tilfellum sem læknar ávísa í kjölfar greiningar.

Rannsóknir hafa sýnt að hægt er að hægja á framgangi heilabilunar og minnka einkenni meðal annars með markvissri líkamlegri, félagslegri og vitrænni virkni. Það er því mikilvægt að formleg greining liggi fyrir svo hægt sé að fá stuðning við slíka virkni.

Hvaða þjónusta er í boði fyrir aðstandendur?

Stuðningshópar fyrir aðstandendur byggjast á hugmyndafræði jafningjastuðnings og er markmiðið með samverunni að hittast og deila reynslu. Allir stuðningshópar eru auglýstir undir viðburðir á alzheimer.is og eru hóparnir mismunandi eftir þörfum aðstandenda.

Einnig bjóða Alzheimersamtökin upp á sálfræðiþjónustu. Það getur verið gott að ræða erfiðar tilfinningar við fagfólk. Hægt er að panta viðtal við sálfræðing í síma 533 1088 eða með því að senda tölvupóst á alzheimer@alzheimer.is. Viðtalið kostar 5.000 kr.

Hvernig get ég minnkað líkur á heilabilun?

Niðurstöður rannsókna sýna að hægt sé að fækka framtíðartilfellum heilabilunar um 45% ef komið er í veg fyrir 14 áhættuþætti heilabilunar. Einnig hafa þessir áhættuþættir áhrif á framgang heilabilunar og því aldrei of seint að huga að þessum þáttum. En hvernig höfum við áhrif á þessa 14 áhættuþætti í okkar eigin lífi?

  1. Vera vitrænt virk á fullorðinsárum.
  2. Nýta hjálpartæki vegna heyrnarskerðingar og draga úr hávaðamengun í umhverfinu okkar.
  3. Leita aðstoðar og meðhöndlunar vegna þunglyndis.
  4. Nota hjálm eða annan búnað sem minnka líkur á höfuðáverkum í íþróttum og daglegu lífi. 
  5. Stunda líkamlega hreyfingu.
  6. Ekki reykja.
  7. Stunda reglulegt eftirlit á blóðþrýstingi.
  8. Fylgjast með kólesteróli í blóði frá miðjum aldri.
  9. Viðhalda heilbrigðri líkamsþyngd.
  10. Minnka líkur á áunninni sykursýki með því að huga að mataræði og hreyfingu.
  11. Draga úr áfengisneyslu.
  12. Draga úr félagslegri einangrun á eldri árum með því að búa með öðrum og taka þátt í félagsstarfi.
  13. Fylgjast með sjón og nýta þau hjálpartæki sem eru í boði vegna sjónskerðingar.
  14. Forðast loftmengun.

Frekari spurningar?

Ef þú hefur frekari spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 533 1088 eða senda okkur tölvupóst á alzheimer@alzheimer.is

Einnig er hægt að leita til ráðgjafa hjá Alzheimersamtökunum. Boðið er upp á ráðgjöf á staðnum, í fjarviðtali eða í síma. Hægt er að panta tíma í ráðgjöf í síma 520-1082 eða senda tölvupóst á radgjafi@alzheimer.is. Ráðgjöfin er öllum að kostnaðarlausu.

Smelltu hér ef þú vilt gerast mánaðarlegur styrktaraðili Alzheimersamtakanna 💜

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?