Fjólublár bekkur á Eskifirði
2. janúar 2025
Víða um land má sjá fjólubláa bekki en tilgangur þeirra er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu.
Nýjasta viðbótin er bekkur staðsettur á Eskifirði 💜
Árið 2024 fór fram fyrsta bekkjaganga Alzheimersamtakanna og verður árlegur viðburður hér eftir.
Ef þitt bæjarfélag hefur áhuga á að setja upp bekk þá má endilega hafa samband við okkur í síma 533 1088 eða senda okkur tölvupóst á alzheimer@alzheimer.is