Hátíðarkveðja og opnunartími

21. desember 2023

Við hjá Alzheimersamtökunum sendum ykkur öllum hugheilar óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Með von um að komandi hátíð færi ykkur gleði og frið 💜

Skrifstofa Alzheimersamtakanna verður lokuð frá kl. 12.00 föstudaginn 22. desember 2023 til kl. 9.00 þriðjudaginn 2. janúar 2024.

Munum að sýna sjálfum okkur og öðrum, skilning, samkennd og væntumþykju, fólk á miserfitt og allar tilfinningar eiga rétt á sér. Einnig er gott að staldra aðeins við og rifja upp að lítið er oft meira. Samvera, faðmlag, símtal eða stutt innlit getur gefið af sér gleði og vellíðan sem yljar og nærir yfir lengri tíma. Munum einnig að njóta hvers dags fyrir sig, því núverandi stund er sú sem við sannarlega höfum og með því að njóta hennar meðvitað, þá sköpum við einnig minningar til lengri tíma.

Farið vel með ykkur og gleðilega hátíð! 🎄

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?