Tónlist í umönnunarstörfum

8. október 2024

Hvetjum öll til að kynna sér námskeið hjá Mímir-símenntun sem er fræðslufyrirtæki sem starfar á sviði framhaldsfræðslu og starfsmenntunar.

Tónlist í umönnunarstörfum:

Tónlist hefur verið hluti af mannlegri tilveru frá upphafi. Tónlistin er áhrifaríkt verkfæri sem allir geta nýtt sér sem sinna börnum og fullorðnum.

Á þessu námskeiði verður farið í hvernig hver og einn notar sína styrkleika til að nýta tónlist sem hluta af samskiptum og umönnun.

Kennt verður hvernig hægt er að nota spilunarlista í umönnun á markvissan máta.

Umsögn frá nemenda: „Það sannarlega opnaði augu mín fyrir nýjum hugmyndum um hvernig mögulega maður geti nálgast fólk með heilabilun með því að nota tónlist. Tónlist virðist vera með því síðasta sem hverfur úr minni fólks og yfirleitt virðist tónlist vekja gleði í hugum fólks og láta því líða vel. Ég mæli hiklaust með þessu námskeiði og vil gjarnan taka svo djúpt í árinni með að segja að allt starfsfólk sem vinnur með bæði öldruðum og heilabiluðum ætti að sækja þetta námskeið.“

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu Mímis.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?