Styrkur í minningu Jarþrúðar
19. nóvember 2024
Óskar Kristinsson og afkomendur hans og Jarþrúðar Vilhjálmsdóttur færðu Alzheimersamtökunum 100.000 kr. styrk í minningu Jarþrúðar sem lést fyrr á árinu. Styrkurinn mun nýtast vel við að halda áfram að veita einstaklingum með heilabilun og aðstandendum þeirra stuðning og þjónustu.
Alzheimersamtökin vilja þakka Óskari og fjölskyldu fyrir að hugsa til okkar 💜