Eir hjúkrunarheimili rekur tvær sérhæfðar dagdeildir fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma.
Dagdeild Eirar er staðsett á 3. hæð í B-húsi Eirar, hjúkrunarheimilis, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík. Starfsemi hófst á deildinni 15. mars 2004 og er þar stafsleyfi fyrir 24 gesti á dag.
Dagdeild Eirar - Borgasel er staðsett í Spönginni 43, 112 Reykjavík í menningar- og þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar. Deildin var opnuð 2. mars 2015 og er þar starfsleyfi fyrir 24 gesti á dag.
Gestirnir eru á breiðu aldursbili og breytilegt er hversu marga daga í vikunni þeir koma á deildina, sumir koma alla virka daga en aðrir færri. Til að komast að í dagþjálfun þarf að liggja fyrir greining um heilabilunarsjúkdóm og getur læknir viðkomandi sent inn beiðni þar um.
Dagþjálfun felur í sér bæði andlega og líkamlega örvun sem hefur jákvæð áhrif á getu og líðan þeirra sem sækja deildina. Flestir dagdeildargestir eru fljótir að finna ánægju og öryggi á staðnum enda er lögð áhersla á að skapa þar heimilislegt andrúmsloft. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og sniðin að getu og áhugasviði gestanna.