Í SKUGGA ALZHEIMERS
Ástvinir segja frá
Hanna Lára Steinsson
Myndskr.: Gerður Gunnarsdóttir
Bókin byggir á djúpviðtölum við aðstandendur átta Alzheimerssjúklinga. Hún er ætluð fagfólki og nemendum í heilbrigðisvísindum, en ekki síður almenningi til fróðleiks. Markmið með bókinni eru að auka skilning samfélagsins á heilabilunarsjúkdómum, kynna þau úrræði sem eru fyrir hendi og benda á hagnýt ráð sem geta gagnast í tengslum við sjúklingana. Enn fremur að styðja við þá sem eru í vafa um hvort leita eigi læknisaðstoðar. Jón Snædal, öldrunarlæknir, ritar sérstakan kafla um Alzheimerssjúkdóminn.
|