Alzheimerkaffi í Hæðargarði 31
Alzheimerkaffi er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra. Tilgangurinn er að gefa fólki tækifæri til að koma saman, þar sem þeirra þörfum er mætt og opna umræðu um áskoranir fólks með heilabilun.
Hæðargarður 31
108 Reykjavík
kl 17:00 - 18:30
Dagskrá:
Auglýst síðar.
Alzheimerkaffið er tilvalinn vettvangur til að hittast og gleðjast saman. Samkoman er ætluð fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra og er upplagt að koma þar saman, hlýða á stutt erindi/skemmtun, spjalla og gæða sér á kaffi og góðum veitingum sem Sóroptimistar sjá um.
Sveinn Arnar Sæmundsson stjórnar samsöng og spilar undir á píanó.
Kaffigjald er 500,- kr. engin þörf á að skrá sig - bara að mæta!
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.