Fræðsluerindi á Seyð...

Fræðsluerindi á Seyðisfirði

Eitt af meginmarkmiðum okkar er auka þekkingu og skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra glíma við. Við höldum því reglulega fræðsluerindi um starf samtakanna, heilabilun og samskipti víðsvegar um landið.

Nú er förinni heitið austur á firði þar sem við höldum m.a. opið fræðsluerindi á Seyðisfirði

• Mán. 28. apríl kl. 17:00 – á Heilsugæslunni á Seyðisfirði

Þeir sem mæta öðlast skilning á heilabilun og hvernig megi bregðast við breyttum aðstæðum. Þá verður farið yfir leiðir til að auðvelda samskipti og hugmyndir fyrir ánægjulegar samverustundir reifaðar.

Hverjir

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.

Fyrir hverja

Fyrirlesturinn er opinn öllum, einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum áhugasömum.

Aðgangur ókeypis.

Fræðsluerindi á Seyðisfirði

28. apríl 2025

kl 17:00 - 18:30

Heilsugæslan á Seyðisfirði

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?