Stuðningshópur fyrir fólk sem á foreldra með heilabilun
Afkomendur eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir en á það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða á hjúkrunarheimili. Hóparnir byggjast á hugmyndafræði jafningjastuðnings og er markmiðið með samverunni að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annarra í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu.
29. janúar 2025
kl 16:30 - 18:00
Lífsgæðasetur St.Jó - 3.hæð
Suðurgata 41
Engin skráning og öll velkomin.
Stuðningshópurinn er í umsjón Brynhildar Jónsdóttur sálfræðings. Eftir mastersnám starfaði Brynhildur á Minnismóttökunni á Landakoti við taugasálfræðilegar greiningar á fólki sem þangað leitaði vegna gruns um byrjandi heilabilun.
Brynhildur starfaði einnig sem klínískur sálfræðingur á Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni þar sem hún sinnti greiningum og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum.