Rafrænn stuðningshópur fyrir aðstandendur fólks með heilabilun
Aðstandendur eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir en á það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða á hjúkrunarheimili. Hóparnir byggjast á hugmyndafræði jafningjastuðnings og er markmiðið með samverunni að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annarra í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu. Fyrsti fundurinn verður haldinn mánudaginn 14.október 2024 kl. 12:00-13:00.
Rafrænn fundur
kl 12:00 - 13:00
Taktu þátt í rafræna stuðningshópnum með því að ýta á hlekk hér fyrir neðan.
Anna Sigga Jökuls Ragnheiðardóttir sálfræðingur
Stuðningshópurinn er í umsjón Önna Siggu Jökuls Ragnheiðardóttur. Anna Sigga hefur starfað sem klínískur sálfræðingur í 14 ár. Lengst af á öldrunardeildum LSH, krabbameinsfélaginu Krafti og Kvíðameðferðarstöðinni. Þar hefur hún sinnt mati og meðferð meðal annars í tengslum við langvinn veikindi, streitu, áföll, kvíða og lágt sjálfsmat.