Stuðningshópur fyrir fólk sem á foreldra með heilabilun
Afkomendur eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir en á það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða á hjúkrunarheimili.
Hóparnir byggjast á hugmyndafræði jafningjastuðnings og er markmiðið með samverunni að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annarra í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu.
Engin skráning og öll velkomin.
19. mars 2025
kl 16:30 - 18:00
Lífsgæðasetur St. Jó - 3. hæð
Suðurgata 41
Stuðningshópurinn er í umsjón Katrínar Mjallar Halldórsdóttur. Katrín Mjöll er með meistaragráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Þá er hún ein af þáttastjórnendum hlaðvarpsins Kvíðakastið og kemur einnig að kennslu í grunn- og meistaranámi við ýmsa háskóla, ásamt því að leiðbeina í BSc lokaverkefnum.